Já, ég fór í hina langþráðu hálskirtlatöku í gær. Það sem fólk sagði við mig þegar það frétti að ég væri á leiðinni var: æjh, greyjið mitt!!! Og: þá máttu borða eins og þú vilt af frostpinnum!!! Jájá... ég var frekar stressuð þegar ég kom inn í skurðstofuna en róaðist þó þegar ég uppgötvaði að ein hjúkkanna var mamma æskuvinar míns, hans Eyþórs. Hún er sallafín :) Það var settur æðaleggur í mig sem er ekki nál, heldur plast sem beygist með æðinni, þannig að það er ekkert vont. Þar í var sett næring og eitthvað kæruleysislyf eða eitthvað, allavega leið mér eins ogég væri drukkin. Svo kom svefnlyfið og þá lognaðist ég strax útaf. Þegar ég vaknaði, um klst. síðar, var ég með eitthvað svona uppi í mér svo að ég myndi ekki kyngja tungunni en það var hjúkka í nágrenninu svo að hún kippti því út um leið og hún sá að ég var vöknuð og lét mig hafa súrefnisgrímu. Ég dottaði af og til og gríman var fljótlega tekin af mér. Svo fékk ég frostpinna og mamma kom og sótti mig um 5 korterum eftir að ég vaknaði. Ég talaði svo að segja án óþæginda, sem flestir voru frekar hissa á. En þegar við mamma fórum í apótekiðtil að kaupa verkjalyf og bólgueyðandi, fór mig að svima og varð óglatt, sjálfsagt af svæfingunni. Með herkjum komumst við út í bíl og mér fór að líða betur á leiðinni. Þegar ég kom heim ver Gústi kominn úr vinnunni og gerði handa mér smoothie með banana og skyri og ísmolum og ríbena. Ég var allan daginn að drekka það... Annars gerði ég lítið annað en að sofa. En núna er ég frekar útsofin eins og er og líður bara eins og ég sé með slæma hálsbólgu. Ég sýp á smoothie af og til og sleiki frostpinna :) En ég vara ykkur samt við að hringja í mig, því ég forðast að tala eins og ég get. Sms er vinsælara þessa dagana.
,,Mig langar þó til að spyrja hv. þingmann hvort hún hafi horft til nýrrar tækni sem er að ryðja sér til rúms og ég hef kynnst persónulega af manneskju sem ég þekki, talgervla sem geta skilið talað mál og breytt því í ritað mál og sem geta breytt rituðu máli yfir í talað mál. Getur það ekki orðið lausn fyrir þennan hóp fólks eftir fimm eða 10 ár? Var það skoðað í þessu samhengi? Þeir eru miklu fleiri sem geta lesið íslensku af tölvuskjá eða hlustað á hana ef tölvan talar en þeir sem kunna táknmál. Ef hinn heyrnarlausi getur skrifað mál sitt niður í tölvu og tölvan talar geta allir Íslendingar skilið hann, og öfugt, ef tölvan skilur talað mál og breytir því í ritað gerist það sömuleiðis. Þessar tölvur eru sífellt að verða minni þannig að ég sé ekki annað en að það væri möguleiki." Tekið af netinu 6.3.2007 Vefslóð: http://www.althingi.is/raeda/133/rad20070227T181429.html Haaa? Já, ókei... ef þið væruð í Kína, til dæmis á ráðstefnu og ykkur byðist tæki sem gæti snúið skrifaðri ensku í talaða kínversku og öfugt eða að hafa túlk, sem talaði ykkar eigin tungumál, hvort mynduð þið vilja? Hugsið ykkur að þið hefðuð bara lært ensku í gegn um ritmál en hefðuð aldrei heyrt hana. Þið væruð ekkert svakalega fær í henni. Það eiga allir rétt á því að geta tjáð sig og fengið upplýsingar á sínu eigin tungumáli, sérstaklega í sínu eigin heimalandi!!! Einnig, eins og Sigurlín Margrét benti á, er tæknin sífellt að bregðast okkur og ef það gerist er enginn annar sem hægt er að stóla á! Að sjálf sögðu væri hægt að styðjast við þetta svona í daglegu lífi með styttri samtöl, t.d. úti í búð, en þetta kemur aldrei í staðin fyrir túlka ag mannleg samskipti. Ég sé ekki betur en að herra Blöndal sé að ýja að því að skipta túlkum út fyrir tölvur!!! Endilega, segið mér hvað ykkur finnst.
Fór á Alþingi á þriðjudaginn. Við Guðrún settumst niður á kaffi París og gerðum okkur líklegar til að panta. Ég tók upp tölvuna, opnaði hana, fór á www.althingi.is, smellti á ,,bein útsending" og þar var hæstvirtur ráðherra, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir, að gera sig til fyrir ræðu. Við stukkum af stað og rétt náðum byrjuninni. Þetta var áhrifamikil ræða og eftir hana kom hver þingmaðurinn á fætur öðrum og hældi Möggu og lýsti yfir stuðningi við þetta frumvarp (um réttindi heyrnarlausra til að tala táknmál og fá túlka o.s.frv.). Jóhanna Sigurðardóttir lýsti yfir hneykslan yfir því hvað litlum fjármunum væri veitt í túlkaþjónustu á meðan ríkissjóður flæddi í peningum. Svo kom Pétur Blöndal og fór eitthvað að röfla um tækni. Hann sagði að það væri til tækni sem breytti skrifuðum texta í tal... fyrir heyrnarlausa... ha?!?!? Ég bíð bara eftir ræðunni hans á Alþingisvefnum til að geta vitnað í hann. Æji, ég ætla alltaf að skrifa eitthvað gáfulegt hérna. Ég verð að bíða þangað til andinn kemur yfir mig.
Ég er orðin hress... eða svona allt að því. Þetta er allavega að koma. Ég ætlaði reyndar bara að segja frá því að við í táknmálsfræðinni verðum með kynningarbás á háskóladeginum, laugardaginn 17. febrúar, í Háskólabíói. Ég verð þar frá 12:30-14:00.
Já, ég er lasin. Nú spyrja kannski sumir sjálfa sig: ha!? verður Vala lasin!?!? Já, ég er lasin og hef legið í rúminu meira eða minna síðan á föstudaginn (í dag er mánudagur). Fyrst voru það beinverkir og hiti, ég poppaði íbúfen eins og mér væri borgað fyrir það. Á öðrum degi fór hósti að gera vart við sig en beinverkirnir hurfu. Þá fannst mér ég nógu hress til að fara í partý!!! Ég var fegin að ég þurfti ekki að æpa yfir tónlistina í þessu partýi, þetta var nefnilega partý í félagi heyrnarlausra!! Svaka gaman, mafíuþema. Ég elska þemu. :) Ég var bara frekar hress, sko. Ég var vel klædd og með far þannig að ég var ekkert að stripplast neitt. En morguninn eftir vaknaði ég með þennan svakalega hósta sem í dag hefur þróast í hálsbólgu líka. Þetta var á leiðinni, ég held EKKI að partýferðin mín hafi sent mig aftur í rúmið, takkfyriroggóðandaginn!!! Þurfti að svíkja elskuna mína litlu sem ég átti að sækja í skólann og fara með í kökuboð í DÖFF-félaginu og hún var svo spennt að sjá heim til mín. Svo þarf ég að svíkja hana aftur í dag. Ömó!! Eeeen ég er staðráðin í að vera svaka skemmtileg á morgun, jafnvel sækja hana í skólann, það væri gaman. Já, og fara í strætó og jafnvel á kaffihús :D En fyrst þarf ég að láta mér batna, einbeita mér að því... lesa, sofa, drekka heitt, hósta, hnerra, snýta mér. Lífið er ljúft....naaaat!!!
Já, hvernig væri að fara að blogga smá? Það er nú það. Já, ég veit ekki. Ég hef alveg nóg að gera. Ekki það að það að (vá) blogga fyrir ykkur, elskurnar mínar, sé ekki mikilvægt. Neinei. Þegar ég er ekki að læra, þá langar mig að: Prjóna (já, ég kláraði peysuna hans Gústa, nú á bara eftir að ganga frá lausum endum og setja rennilásinn í, en það er ekki eins skemmtilegt), spila Transport Tycoon Delux (giv mí a breik, ég hef ekki orðið háð tölvuleik síðan The Sims var nýr)... já, það er þetta sem ég geri í frítíma mínum. En þegar ég sá að einhver actually las síðuna mína, þrátt fyrir það að það væri rúmur mánuður frá síðasta bloggi, hugsaði ég með mér að nú væri lag að blogga smá. Here goes. Já, það sem er að gerast í mínu lífi: Ég er, eins og flestir vita og fá að heyra allhressilega þegar ég djamma, að læra táknmálsfræði í HÍ. Það gengur barasta alveg svakalega vel hingað til og mér finnst það alveg hreint sérlega gaman. Ég er enn í Óperukórnum í Reykjavík eeeen ákvað að taka mér frí það sem eftir er þessarar annar. Þess í stað mun ég fá að njóta þess að fara á tónleika í Febrúar þegar þau flytja Carmina Burana. Ég tók mér frí til þess að geta hjálpað einni mömmu sem á tvær dætur sem eru að verða blindar og heyrnarlausar. Þær eru alger yndi, alveg hreint stórkostlegar!!! Þegar ég sá að þessi vinna yrði ekki nógu mikil til að geta séð mér fyrir u.þ.b. því sem ég þarf á mánuði sótti ég um vinnu á frístundaheimili og bað sérstaklega um að fá að vera í Hlíðaskóla þar sem þar eru börn sem nota táknmál. Ooooog stuttu seinna var hringt í mig og konan lýsti því yfir að hún myndi nú barasta alveg ráða mig bara í gegn um símann en það væri nú ekki úr vegi að hittast. Ég var einmitt í staffapartýi í gær. Svaka gaman. Í sumar verð ég í mánuð, já mánuð, í Kosta Ríka með Gústa, Björgu, Erik og pabba til að heimsækja föðurfjölskyldu Eriks og skemmta okkur og slappa af, en einnig til að taka upp allavega tvær heimildamyndir. Við fljúgum til New York 31. maí og komum heim via NY 2. júlí. Hafiði það sem allra, allra best, börnin mín. Sjáumst :)
Gleðileg jól kæru vinir nær og fjær!!! Ég sendi ekki jólakort innanlands þessi jól frekar en í fyrra. Þá styrkti ég góðgerðarstarfsemi um þá upphæð sem mér reiknaðist til að ég myndi eyða í póstkort innanlands. Ég er ekki búin að velja mér málefni fyrir þessi jól, ég er opin fyrir uppástungum. Annars er allt gott að frétta, prófin gengu vel og nú vinn ég eins og brjálæðingur í flugeldhúsinu á Reykjavíkurflugvelli. Eftir jól fer ég í viðtal í sambandi við nýja vinnu, nefnilega hjá félagsþjónustunni. Þar verð ég líklega með stelpu sem er bæði blind og heyrnarlaus. Þetta verður örugglega bæði erfitt og skemmtilegt. En allavega, gleðileg jól öllsömul og hafð það sem allrabest um jólin :) Góða nótt, börnin mín.